Vefleiðangur um London
Kynning
London er höfuðborg Englands. Hún er oft kölluð drottning stórborganna.
Þangað sækja margir ferðamenn allt árið um kring. Hvort sem þú hefur áhuga á kvikmyndum, listasöfnum, verslunum, veitingahúsum eða næturlífi, fara í leikhús eða horfa á fótbolta, þá er það hér allt í hnotskurn því fáar borgir státa af eins fjölbreyttu menningarlífi, jafnmörgum leikhúsum, söfnum og merkisbyggingum, kvikmyndahúsum og tónleikasölum. Þar við bætast ótal matsölu- og veitingastaðir og vöruúrval í verslunum sem er mjög fjölbreytt.
Í London er best að nota neðanjarðarlestirnar til að komast fljótt á milli staða.

Vefleiðangur til London er ætlaður fyrir nemendur í tölvuáföngum.
Með því að fara í gegnum hann eiga þeir að læra að leita á Vefnum að því sem þeir óska eftir.
Einnig læra þeir að senda skýrslu sem viðhengi í tölvupósti, því vefleiðangrinum lýkur á því að nemendur gefa skýrslu um niðurstöður sínar og senda kennara sem viðhengi í tölvupósti.

Verkefnið er einstaklingsverkefni.
Í heild á það að taka u.þ.b. tvær til þrjár vikur.
Kennari kynnir verkefnið fyrir nemendum.
Þeir eiga síðan að vinna sjálfstætt í tölvustofu og skila síðan niðurstöðum í lok verkefnis í skýrsluformi til kennara sem viðhengi í tölvupósti. Allar tengingar í síður á Vefnum þurfa að vera virkar í skýrslunni.

Nemendur ímynda sér að þeir séu að fara í ferð til London. Þar ætla þeir að dvelja þar í nokkra daga, a.m.k. 4 daga en mest viku.
Þeir eiga að leita á Vefnum að ódýru hóteli fyrir tveggja manna herbergi.
Nemendur hafa takmörkuð fjárráð og eiga að komast af með sem minnstan pening.

Flogið er með Flugleiðum til Heathrow flugvallar.
Ef flogið er með WOW er lent á Gatwick flugvelli.

Síðan vinna nemendur eftirfarandi verkefni:
a) Kanna hvaða söngleiki er verið að sýna í London á þeim tíma sem dvalið er þar; einnig tíma og verð og hvort hægt sé að panta í gegnum Vefinn og greiða með greiðslukorti. Veljið síðan 1 söngleik og segið stuttlega frá honum.
b) Nemendur athugi hvaða fótboltaleikir eru í boði meðan á dvölinni stendur, athugi hvort, hvenær og hvar og hvaða lið verða að keppa.
Ef leikurinn er ekki í London (t.d. í Liverpool eða Manchester), á að finna út hvernig hægt er að komast til staðarins með lest.

c) Nemendur finni helstu söfn í London.
Þeir velja eitt af þeim og og skrifa stutta lýsingu á safninu (málverk, höggmyndir, fornleifar).

d) Nemendur kynni sér helstu verslanir og útimarkaði í London. Veljið síðan 2-3 markaði og verslanir og segið frá þeim.
e) Nemendur kanni möguleika á að fara í kynnisferð um borgina.
Þeir athugi verð, tíma og ferðatilhögun og taka fram hvaða staðir verða skoðaðir í ferðinni.

Bjargir
Tengisíðurnar hér fyrir neðan hjálpa við að finna það sem leitað er eftir:

| Ferli Byrjið á að skoða í hverju verkefnið felst og hvað ykkur langar að gera meðan á dvöl ykkar stendur. Skoðið bjargirnar sem fylgja þessum vefleiðangri. Þið megið gjarnan leita sjálf á Vefnum eftir því sem þið hafið áhuga á. Þá farið þið inn á leitarsíður og notið vðeigandi leitarorð. Um er að ræða einstaklingsverkefni. Framlag hvers nemanda á að senda í skýrsluformi sem viðhengi í tölvupósti til kennara. Eftirfarandi atriði þurfa að koma fram í skýrslunni: Brottför og komutími Keflavík-Heathrow. Brottför og komutími Heathrow-Keflavík. Hótel: Nafn, staðsetning, verð, þægindi (WC, sturta, morgunverður o.s.frv.). Verkefni a), b), c), d) og e): Nemendur skila upplýsingum um það sem beðið er um í fyrirmælunum hér að framan. Að verkefninu loknu eiga nemendur að vera færir um að leita að efni á Vefnum og senda tölvupóst með viðhengi. Nú er um að gera að láta hugmyndaflugið ráða! Gangi ykkur vel og góða skemmtun! |
Engin ummæli:
Skrifa ummæli