Tölvuval 2011-2012

Tölvuval 2011-2012
Nemendur í tölvuvali eru 2 tíma í viku. Aðaláherslan er á sjálfstæð vinnubrögð.
Í boði fyrir nemendur í 9. og 10.bekkUm er að ræða hagnýtt námskeið í notkun forrita úr pökkunum Microsoft Office 2010 og Adobe Master Collection CS3. Að auki gefst nemendum kostur á að kynna sér nýjungar í tölvumálum. Eitt helsta verkefni nemenda er að búa til og vinna með efni til kynningar á skólanum og starfi nemenda, t.d. með gerð myndbanda.
Nemendur vinna bæði einstaklings- og hópverkefni og eiga þeir að vinna eftir eigin áætlunum. Námið fer fram í tölvustofu og er ætlast til að nemendur hjálpist að við úrlausn verkefna. Mjög mikil áhersla er á sjálfstæð vinnubrögð og sjálfsnám.
Markmið-Nemandi öðlist kunnáttu á helstu sviðum hagnýtrar upplýsingatækni þannig að hann standist þær grunnkröfur sem framhaldsskólinn gerir til nemenda á þessu sviði.
-Að nemendur geti notað tölvuna við nám og þekki ýmis gagnleg forrit og vefsíður.
-Að nemendur kynnist nýjungum á sviði upplýsingatækni.
-Að nemendur öðlist sjálfstæði í vinnubrögðum á sviði upplýsingatækni
NámsmatNámsmatið tekur mið af verkefnaskilum, virkni í tímum og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Virkni 35%, valverk 30%, skylduverk 25%, 10% Fjölþraut (2 tímar, 3 í hópi, þarf að fullmóta reglur)
Vista allt sem maður gerir í möppunni:
Margmiðlun-Nemendur-Myndir-Tölvuval  í möppu merkt sjálfum sér
Skylduverk:

1, Moviemaker: Lágmark 3 mínútur-áhersla á frumleika, t.d. búa til myndasögu (sögu)
2.Powerpoint: Frjálst efnisval-10 glærur-hljóð-videó-mikið af effektum. Lesa vel yfir- mínus fyrir slæma stafsetningu.
3. Fjölþraut: Hraðakeppni, taka þematengdar ljósmyndir, videómynd, verk að eigin vali:
Einskonar ratleikur í tölvuvali- Fjölþrautin3 hópar, 3-4 í hverjum. 1 myndavél á hóp
Verkefni:
I. Powerpoint-Búa til auglýsingu um vöru
II. Ljósmyndir: Þemað er Skólinn minn. 7-10 ljósmyndir.
Ljósmyndir vistaðar á Sameign O:\Nemendur\Myndir\Tölvuval2 2009-2010 í viðeigandi möppu
III. Stutt myndband tekið á myndavél. Kynning að eigin vali.
Myndbandið vistað á Sameign O:\Nemendur\Myndir\Tölvuval
IV. Listaverk. Forrit að eigin vali.
4.Setja photoshop myndir í moviemaker-myndband-sýna afrakstur í lok námskeiðs.

Valverk:

Hugmyndir að frjálsum verkefnum:
-Læra á nýtt stýrikerfi Windows 2010:-Hvað er nýtt?
-Búa til Powerpoint-glærusýningu um nýja hluti
-Læra á nýjan hugbúnaðarvöndul Office 2010:Hvað er nýtt:http://www.microsoft.com/is/is/default.aspx
http://office.microsoft.com/en-us/
-Taka upp videó og klippa það til
-Taka ljósmyndir og vinna þær
-Búa til sjónvarpsþætti. Gætu þess vegna stýrt þáttum og fengið aðra til að skrifa handrit og flutt efnið
-Hver nemandi eða 2 saman byrja á að búa til vefsíðu: weebly.com með góða myndasíðu, wordpress.com
vefrænt fréttabréf http:\\issuu.com
-skrá sig inn á youtube.com, flickr.com eða sambærilega myndasíðu og setja inn efni.
-Nemendur búa til greinar sem færu á heimasíðu
-Búa til heimildamynd um skólann og nemendur, eins konar kynningarmyndband
-Læra grunn í Photoshop, Premiere Pro, Illustrator, http://tv.adobe.com/-Kynna sér tækninýjungar og kynna þær fyrir samnemendum
-Hvernig er hægt að nýta tæknina til að auðvelda nám?

Engin ummæli:

Skrifa ummæli