Tölvuval vor 2015

Um námskeiðið

Um er að ræða hagnýtt námskeið í upplýsingatækni og tölvunotkun.
Nemendur munu kynnast nýjungum í tölvunotkun og upplýsingatækni, m.a. spjaldtölvum.
Helstu viðfangsefni eru gerð myndbanda, vinna með ljósmyndir og hljóðvinnsla. Þar að auki gefst nemendum kostur á sjálfstæðri vinnu.
Nemendur vinna bæði einstaklings- og hópverkefni. Námið fer fram í tölvustofu og er ætlast til að nemendur hjálpist að við úrlausn verkefna. Mjög mikil áhersla er á sjálfstæð vinnubrögð og sjálfsnám.

Verkefnin á að setja á einfalda vefsíðu og senda slóð að þeirri síðu til kennara.
Mælt er með vefsíðunum, WeeblyWix, Blogger eða Wordpress

Markmið
  • Að nemandi öðlist kunnáttu á helstu sviðum hagnýtrar upplýsingatækni þannig að hann standist þær grunnkröfur sem framhaldsskólinn gerir til nemenda á þessu sviði.
  • Að nemendur kynnist nýjungum á sviði upplýsingatækni.
  •  Að nemendur öðlist sjálfstæði í vinnubrögðum á sviði upplýsingatækni
Námsmat
Námsmatið tekur mið af verkefnaskilum, virkni í tímum, sjálfstæði í vinnubrögðum, undirbúningsvinnu (heimavinnu) og síðast en ekki síst vefsíðunni, sem nemendur búa til.

1. 

Í ljósmyndahlutanum munum við vinna með eigin ljósmyndir eða annarra manna af netinu.
Athugaðu að stærð myndanna þarf að vera að lágmarki yfir 200 kb eða 1200x800 dpi (dots per inch (punktar á tommu))
Við ætlum að nota Photoshop CS 4 sem er að finna í borðtölvum. Eldri útgáfa en vel nothæf.
Við munum vinna í Photoshop í 4 vikur.

.

Öll myndböndin eru á ensku. Tilgangurinn með áhorfinu er að kynnast vinnusvæðinu.
Að auki er hér íslenskt hjálparefni. (Sjá bls. 16-32) 
Annað hjálparefni er, t.d. beint úr smiðju framleiðandans, Adobe.Þú .mátt gjarnan búa til aðgang á Flickr,  og eða Photobucketog hlaða myndunum þínum þangað.

2. Hljóð

Í hljóðþættinum munum við nota Reaper eða Audacity
Audacity er opinn hugbúnaður (e. open source software) en það þýðir að hugbúnaðurinn er ókeypis og opinn þannig að aðrir geta forritað hugbúnaðinn, þ.e. breytt honum og lagfært.


Reaper svipar í útliti og virkni til hljóðforrita, sem atvinnumenn nota, s.s. Pro Tools eða Fruity Loops (FL). Reaper kostar ýmist 60 eða 225$ eftir aðstæðum.



Fyrir fyrsta vinnutíma áttu að skoða kynningar á Audacity og Reaper og ákveða hvort forritið þú vilt vinna með:
Fyrirmæli fyrir hljóðhlutann:  Þú átt að vinna tvö verkefni.
Hið fyrra, sem á að taka um 1-3 mínútur í flutningi, á að vera hljóðsaga. Áheyrendur eiga að geta ímyndað sér söguþráðinn  með hjálp samsettra hljóðeffekta.
Hið síðara á að vera 4-6 mínútna langt. Nemandi á að blanda saman að minnsta kosti fjórum eða fleiri lögum svo úr verði medley eða blanda af lögum og ef vel er gert má vart heyra skilin á milli laga eða hve mörg lög eru fléttuð saman.
Athugaðu vel að þú átt að nota tónlist, sem er er ókeypis og löglega fengin.
Skoðaðu síðuna http://freebies.about.com/od/computerfreebies/tp/free-music-downloads.htm,veldu áhugaverða síðu með ókeypis lögum sem má niðurhala og veldu síðan 4-6 lög/hljóð, sem þér finnst passa vel saman.
Hjálparsíður:

Í hljóðahlutanum býrðu þér til aðgang á Soundcloud, https://soundcloud.com/, og setja öll hljóðin þín þangað. Slóðirnar að hljóðunum setur þú svo á síðuna þína.
Þessi hluti mun taka 4 vikur.

Góðar hjálparsíður:
Dropbox, https://www.dropbox.com/. Hér er hjálparsíða um forritið.


  • 4. Val

    Í síðasta hluta Tölvuvals gefst þér kostur á að velja þitt eigið verkefni.
    Eina skilyrðið er að þú kynnir verkefnið fyrir samnemendum.

    Þú gætir kynnt forrit eða vefsíðu. Hægt er að vinna verkefni í einhverju forriti og kynna það.
    Einn möguleiki í viðbót væri að kynna tæki, eiginleika þess og not fyrir samnemendum.
    Kynningin á að vera á bilinu 5-8 mínútna löng.
    Þessi hluti mun taka 3 vikur.

    Námsmat

    Eins og fram kom í innngangi byggist námsmatið á verkefnaskilum, virkni í tímum, undirbúningsvinnu og sjálfstæði í vinnubrögðum.
    Hver hluti: Myndbandagerð, Ljósmyndir, Hljóð og Val vegur 15%, vefsíðan, uppsetning og aukaefni, vegur 20% og virkni í tímum 20%

Engin ummæli:

Skrifa ummæli