Tölvuval
fimmtudagur, 29. janúar 2015
fimmtudagur, 10. október 2013
Tölvuval 2013
Um námskeiðið
Um er að ræða hagnýtt námskeið í upplýsingatækni og tölvunotkun.
Nemendur munu kynnast nýjungum í tölvunotkun og upplýsingatækni, m.a. spjaldtölvum.
Helstu viðfangsefni eru gerð myndbanda, vinna með ljósmyndir og hljóðvinnsla. Þar að auki gefst nemendum kostur á sjálfstæðri vinnu.
Nemendur vinna bæði einstaklings- og hópverkefni og eiga þeir að vinna eftir eigin áætlunum. Námið fer fram í tölvustofu og er ætlast til að nemendur hjálpist að við úrlausn verkefna. Mjög mikil áhersla er á sjálfstæð vinnubrögð og sjálfsnám.
Verkefnin á að setja á einfalda vefsíðu og senda slóð að þeirri síðu til kennara.
Mælt er með vefsíðunum, Weebly, http://www.weebly.com/, Wix, http://www.wix.com/ eða Wordpress, http://wordpress.com/.

Markmið
- Að nemandi öðlist kunnáttu á helstu sviðum hagnýtrar upplýsingatækni þannig að hann standist þær grunnkröfur sem framhaldsskólinn gerir til nemenda á þessu sviði.
- Að nemendur kynnist nýjungum á sviði upplýsingatækni.
- Að nemendur öðlist sjálfstæði í vinnubrögðum á sviði upplýsingatækni
Námsmat
Námsmatið tekur mið af verkefnaskilum, virkni í tímum, sjálfstæði í vinnubrögðum, undirbúningsvinnu (heimavinnu) og síðast en ekki síst vefsíðunni, sem nemendur búa til.
1. Myndband
Þessi fyrsti hluti námskeiðs er um myndbönd. Þitt hlutverk er að búa til myndband og efni þess á að tengjast skólanum þínum.
Við munum vinna myndbandið í Movie Maker. Forritið er ókeypis og ef þú vilt setja það upp í eigin tölvu heimafyrir, er hægt er að ná í það hér. Á sömu síðu má finna leiðbeiningar um notkun forritsins og annað skemmtiegt.
Forritið Movie Maker er uppsett í tölvunum í tölvustofunni okkar. Það fyrsta sem þú þarft að gera er að búa til möppu, með nafni þínu, á harða diski tölvunnar þinnar. Eftir það verður þú að fara í þessa ákveðnu tölvu í hvert sinn, sem þú vinnur í myndbandinu þínu.
Síðan hefst söfnunin. Þú þarft að taka upp myndefni. Við gerum ráð fyrir að nota venjulega, stafræna myndavél.
Þegar upptökum er lokið, tengirðu myndavélina við usb-tengi tölvunnar og setur efnið á tölvuna þína. Þegar þú hefur safnað saman því, sem þú ætlar að nota í myndina þína hefst hin eiginlega klipping.
Ef þú nærð ekki að klára verkefnið í tímanum, þá þarftu að vista vinnueintak. Þú velur Save Project As og vistar afurðina í möppunni þinni á harða diskinum.
Þegar allri klippingu er lokið og allt tilbúið þarftu að vista myndina.
Mjög mikilvægt! Þegar myndbandið er tilbúið þarf að vista það á þann hátt að myndbandaspilarar á borð við Windows Media Player geti spilað það. Þú ýtir á Bláa hnappinn (lengst til vinstri), velur Save Movie-Standard Definition og vistar í réttri möppu. Kennari segir nánar til um hvaða möppu.
Skilyrði sem myndin þín þarf að uppfylla::
- Myndefnið á að tengjast skólanum
-Myndin þín á að vera 3-5 mínútur að lengd
--Title (Titill)
-Credits (Texti í lok sýningar)
-Animations (Skiptingar á milli mynda)
-Visual Effects (Myndhrif sett ofan á myndir)
Síðan má, ef vill:
-Captions (texti settur ofan í myndir)
-Setja tónlist við
Þegar myndin er tilbúin, áttu að búa til aðgang á Youtube og hlaða myndinni þangað upp.
Þar með ertu kominn með slóð til að setja inn á síðuna þína.
Aukaverkefni: Screenr.
Screenr er vefforrit til upptöku á mynd og hljóði. Í byrjun þarftu að búa til aðgang. Sign Up og notar skólanetfangið þitt. Til að geta tekið upp þarf vefmyndavél og heyrnatól með hljóðnema.
Hægt er að taka upp 5 mínútna langt myndband.
Kennarii mun gefa þér upp viðfangsefni þegar að því kemur.

Þessi hluti Tölvuvals mun taka 4 vikur.
2. Ljósmyndir
Í ljósmyndahlutanum á að búa til ljósmyndasýningu með ákveðnu þema.
Við munum ákveða þemun sameiginlega í tíma og hver velur sitt.
1. Þú verður að útvega þína eigin myndavél. Nýlegar stafrænar myndavélar eru mjög öflugar og góðar og er m.a.s. hægt að taka HD myndbönd á slíkar vélar. Það fyrsta sem þú þarft að gera er að skoða myndavélina þína og læra á hana. Í nýlegum myndavélum má finna alls kyns tilbúnar stillingar, sem við notum sjaldnast. Þessi hluti flokkast sem heimavinna.
2. Myndatakan:: Þú átt að taka ljósmyndirnar.
3. Eftirvinnsla ljósmynda fer fram í skólanum og við ætlum að nota Photoshop.
Heimavinnan felst í áhorfi myndbandanna sem hér fylgja:
.
Að auki er hér íslenskt hjálparefni. (Sjá bls. 16-32)
Öll myndböndin eru á ensku. Tilgangurinn með áhorfinu er að kynnast vinnusvæðinu.
Þú .þarft að búa til aðgang á Flickr, http://www.flickr.com/, og hlaða myndunum þínum þangað.

3. Hljóð
Í hljóðþættinum munum við nota Reaper og Audacity.
Audacity er opinn hugbúnaður (e. open source software) en það þýðir að hugbúnaðurinn er ókeypis og opinn þannig að aðrir geta forritað hugbúnaðinn, þ.e. breytt honum og lagfært.
Reaper svipar í útliti og virkni til hljóðforrita, sem atvinnumenn nota, s.s. Pro Tools eða Fruity Loops (FL). Reaper kostar ýmist 60 eða 225$ eftir aðstæðum.
Fyrir fyrsta vinnutíma áttu að skoða kynningar á Audacity og Reaper og ákveða hvort forritið þú vilt vinna með:
Fyrirmæli fyrir hljóðhlutann: Þú átt að vinna tvö verkefni.
Hið fyrra, sem á að taka um 1-3 mínútur í flutningi, á að vera hljóðsaga. Áheyrendur eiga að geta ímyndað sér söguþráðinn með hjálp samsettra hljóðeffekta.
Hið síðara á að vera 4-6 mínútna langt. Nemandi á að blanda saman að minnsta kosti fjórum eða fleiri lögum svo úr verði medley eða blanda af lögum og ef vel er gert má vart heyra skilin á milli laga eða hve mörg lög eru fléttuð saman.
Athugaðu vel að þú átt að nota tónlist, sem er er ókeypis og löglega fengin.
Skoðaðu síðuna http://freebies.about.com/od/computerfreebies/tp/free-music-downloads.htm, veldu áhugaverða síðu með ókeypis lögum sem má niðurhala og veldu síðan 4-6 lög/hljóð, sem þér finnst passa vel saman.
Í hljóðahlutanum býrðu þér til aðgang á Soundcloud, https://soundcloud.com/, og setja öll hljóðin þín þangað. Slóðirnar að hljóðunum setur þú svo á síðuna þína.
Þessi hluti mun taka 4 vikur.
Góðar hjálparsíður:
Dropbox, https://www.dropbox.com/. Hér er hjálparsíða um forritið.

Hjálparsíður:
Hljóðeffektar:
http://www.grsites.com/archive/sounds/ http://www.audiosparx.com/sa/display/submain.cfm/sound_group_iid.15
Hvað er medley? :
http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_musical_medleys
Tónlist til að hala niður og nota:
http://freemusicarchive.org/curator/creative_commons
https://creativecommons.org/legalmusicforvideos
Hvað er creative commons leyfi?:
http://creativecommons.is/
http://creativecommons.org/

4. Val
Í síðasta hluta Tölvuvals gefst þér kostur á að velja þitt eigið verkefni.
Eina skilyrðið er að þú kynnir verkefnið fyrir samnemendum.
Þú gætir kynnt forrit eða vefsíðu. Hægt er að vinna verkefni í einhverju forriti og kynna það.
Einn möguleiki í viðbót væri að kynna tæki, eiginleika þess og not fyrir samnemendum.
Kynningin á að vera á bilinu 5-8 mínútna löng.
Þessi hluti mun taka 3 vikur.Námsmat
Eins og fram kom í innngangi byggist námsmatið á verkefnaskilum, virkni í tímum, undirbúningsvinnu og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Hver hluti: Myndbandagerð, Ljósmyndir, Hljóð og Val vegur 15-25%, vefsíðan, uppsetning og aukaefni, vegur 10% og virkni í tímum 20%.
Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)